Volvo vinsælasti lúxusbíllinn á Íslandi
Volvo hefur verið í mikilli sókn undanfarin ár á lúxusbílamarkaði á heimsvísu og hefur slegið sölumet 6 ár í röð. Árið 2019 náði Volvo að selja yfir 700.000 bíla í fyrsta sinn í 93 ára sögu þeirra eða 705.452 bíla sem er 9,8% aukning frá árinu áður og juku þannig markaðshlutdeild sína á öllum mörkuðum.
Vinsældir Volvo á Íslandi er þar engin undantekning því hlutdeild Volvo af lúxusbílamarkaði hér á landi hefur verið einstök síðustu árin.
Árið 2019 var Volvo með 35,2% hlutdeild á einkabílamarkaði lúxusbíla og á heildarbílamarkaði lúxusbíla ber Volvo höfuð og herðar yfir aðra lúxusbíla með 29,2% hlutdeild á árinu sem var að líða sem er mesta hlutdeild á einu markaðssvæði á heimsvísu.
Vinsælustu Volvo bílarnir eru jepparnir XC90, XC60 og XC40.
Kynntu þér lúxusbíla frá Volvo
Núna eru allir nýir Volvo í boði með tengiltvinnvél og fljótlega fáum við að sjá hreina rafmagnsbíla en XC40 verður sá fyrsti.
Heildar lúxusbílamarkaður 2019 |
||
Volvo |
418 |
29,2% |
Land Rover |
246 |
17,2% |
Audi |
166 |
11,6% |
BMW |
174 |
12,2% |
Mercedes Benz |
204 |
14,3% |
Lexus |
61 |
4,3% |
Porsche |
30 |
2,1% |
Jaguar |
87 |
6,1% |
Tesla |
44 |
3,1% |
Aðrir |
0 |
0,0% |
Heild |
1430 |
|