Fara í efni

Bílaskipti

Bílaskipti - notaður bíll uppí annan bíl

Losnaðu við fyrirhöfnina við að selja bílinn þinn! Hjá Brimborg geturðu skipt út gamla bílnum þínum fyrir nýjan eða notaðan til kaups eða langtímaleigu, án sölulauna. Við tökum flestar gerðir bíla upp í ef uppítökubíllinn er á númerum, skráður í umferð hjá Samgöngustofu og gangfær en hann má vera bilaður. Ferlið er einfalt og fljótlegt.

Engin sölulaun og við sjáum um allt ferlið.
Þú getur sett gamla bílinn þinn upp í nýjan eða notaðan bíl með uppítöku, þ.e. bílaskipti upp í annan bíl í sölu eða langtímaleigu hjá Brimborg. Við sjáum um allt meðal annars eigendaskipti, afsal og tilkynningar til Samgöngustofu og tryggingarfélags þíns. Þú greiðir engin sölulaun þegar þú skiptir bíl upp í annan bíl hjá okkur.

Við uppítöku (bílaskipti) þá má heildarvirði uppítökubílsins ekki vera meira en heildarverði bílsins sem keyptur verður eða langtímaleigður. Hægt er að setja fleiri en einn eldri bíl upp í kaup á einum bíl ef verðmæti beggja uppítökubílanna er lægra en verðmæti bílsins sem keyptur er eða langtímaleigður. Ef tekinn er bíll á langtímaleigu þá er hægt að setja eldri bíl upp í með beinum kaupum.

Bílaskipti í notaðan bíl

  1. Skoðaðu fyrst úrval notaðra bíla í Vefsýningarsal notaðra bíla.
  2. Finndu bíl sem þér líst á og biddu um tilboð í bíl, skrifaðu þar inn ósk um uppítöku og verðmat á gamla bílnum þínum.
  3. Söluráðgjafi hefur samband um hæl, ræðir við þig um uppítökuverð, milligjöf, fjármögnun og næstu skref eins og söluskoðun.

Vefsýningarsalur (leitarvél) notaðra bíla

Bílaskipti í nýjan bíl

  1. Skoðaðu fyrst úrval nýrra bíla í Vefsýningarsal nýrra bíla.
  2. Finndu bíl sem þér líst á og biddu um tilboð í nýjan bíl, skrifaðu þar inn ósk um uppítöku og verðmat á gamla bílnum þínum.
  3. Söluráðgjafi hefur samband um hæl, ræðir við þig um uppítökuverð, milligjöf, fjármögnun og næstu skref eins og söluskoðun.

Vefsýningarsalur nýrra bíla

Hröð og örugg þjónusta

  • Af hverju uppítaka hjá Brimborg?
      • Engin sölulaun – þú sparar tíma og pening.
      • Einfalt og hratt ferli – við sjáum um allt frá upphafi til enda.
      • Hagstæð fjármögnun – ef þú þarft lán fyrir mismuninum, finnum við lausn sem hentar þér.
      • Mikið úrval nýrra og notaðra bíla – finna má fjölbreyttar tegundir og verðflokka.

Skiptu gamla bílnum upp í annan – snurðulaust.

Uppítaka