Fara í efni

Metár í sölu notaðra rafbíla hjá Brimborg

Metár í sölu notaðra rafbíla hjá Brimborg
Nýir og notaðir rafbílar í úrvali hjá Brimborg til kaups eða langtímaleigu. Bílaskipti í boði.

Metár í sölu notaðra rafbíla hjá Brimborg

Árið 2024 var metár í sölu notaðra rafbíla hjá Brimborg, þar sem sala þeirra jókst um 110,9% og endursöluverð var mjög sterkt. Rafbílar eru sífellt að verða vinsælli þar sem rekstrarkostnaður þeirra getur verið allt að 60% lægri, jafnvel þegar kílómetragjald er tekið með í reikninginn. Auk þess er þjónustuþörf rafbíla minni en eldsneytisbíla og nýjustu gögn benda til þess að líftími rafbíla geti verið lengri en eldsneytisbíla sem endurspeglast í löngum ábyrgðartíma rafbíla og rafhlaða.

Brimborg óskar eftir rafbílum í uppítöku

Vegna mikillar sölu á notuðum rafbílum vantar Brimborg fleiri slíka í sölu. Rafbílar halda endursöluverði mjög góðu vegna lágs rekstrarkostnaðar, minni þjónustuþarfar. og lengri ábyrgðartíma. Brimborg býður uppítöku á öllum tegundum notaðra rafbíla, sem er hægt að skipta út fyrir nýjan eða nýlegan rafbíl. Viðskiptavinir geta valið um kaup eða langtímaleigu á nýjum og notuðum rafbílum og nýtt sér bílaskipti hjá Brimborg.

Úrval rafbíla til sölu og langtímaleigu má skoða í Vefsýningarsölum og þar er hægt að óska eftir verðmati í uppítöku.

Vefsýningarsalur nýrra bíla

Vefsýningarsalur (leitarvél) notaðra bíla

Nú eru ríflega 30 þúsund rafbílar í umferð á Íslandi og margir rafbílaeigendur eru byrjaðir að huga að endurnýjun í annan rafbíl.

Norðmenn í fararbroddi á rafbílamarkaði

Rafbílavæðing í Noregi hefur verið ótrúlega hröð. Árið 2024 náði hlutdeild rafbíla í heildarsölu nýrra bíla 88,9%, og í desember fór hún yfir 95%. Markmið Norðmanna er að ná 100% hlutdeild rafbíla í nýskráningum árið 2025, sem endurspeglar bæði hraða tækniþróunar og aukinn áhuga neytenda á umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngum.

Vaxandi fjöldi rafbíla á heimsvísu

Frá árinu 2010 hefur fjöldi rafbíla í umferð á heimsvísu vaxið úr um 20 þúsund bílum í yfir 55 milljónir. Fyrstu rafbílar sem komu á markað hafa sannað sig með lengri endingartíma og nýjustu rannsóknir staðfesta að ending drifrafhlaðna sé miklu lengri en fyrstu spár bentu til.

Stórfelld uppbygging hleðslustöðva á Íslandi

Hleðsluinnviðir, sérstaklega hraðhleðslustöðvar, hafa tekið miklum framförum frá byrjun árs 2024. Nú eru hleðslustöðvar orðnar fleiri og það stefnir í að þær verði fljótlega yfir 200 talsins víðsvegar um landið. Með auknum fjölda stöðva er gert ráð fyrir betra þjónustuöryggi og aukinni afkastagetu í hæsta gæðaflokki.