Ford EcoSport er nú fáanlegur fjórhjóladrifinn
Ford EcoSport er sportlegur að utan, rúmgóður að innan, einstaklega vel búinn og nú fáanlegur fjórhjóladrifinn.
EcoSport býður upp á mikla veghæð sem kemur sér ekki aðeins vel í snjó og við erfiðari aðstæður því þú situr líka hærra og það er mun þægilegra að ganga um bílinn.
Aksturseiginleikar Ford EcoSport eru framúrskarandi. Komdu í reynsluakstur.
Háþróuð ökumannskerfi
Uppgötvaðu tækni sem gerir aksturinn afslappandi og gefandi og gerir lífið eins streitulaust og þægilegt og mögulegt er.
Besta tæknin er alltaf sú sem gerir eitthvað betra, leysir vandamál og hefur skýran tilgang. Það er nákvæmlega það sem þú getur búist við af Ford EcoSport. Taktu í stýrið og fáðu stjórn á háþróuðu ökumannskerfi í hækkaðri akstursstöðu. LED ljósin sameina bæði háan sýnileika og stíl. Brekkubremsan kemur í veg fyrir að bíllinn renni aftur á bak þegar tekið er af stað í halla.
Ford EcoSport er einstaklega vel búinn, vélin er sérlega sparneytin og mikið er lagt upp úr öllum öryggisbúnaði. Þú situr hátt og aksturseiginleikar Ford EcoSport eru fyrsta flokks og þægindin í hámarki.
Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford EcoSport AWD.