Fara í efni

Bílalán

Bílalán nýrra bíla

Bílalán er einföld og þægileg leið til að eignast nýjan bíl og sjá söluráðgjafar Brimborgar um allt ferlið fyrir þig. Bílalán fyrir nýja bíla fást hjá öllum fjármögnunarfyrirtækjum og sjá söluráðgjafar Brimborgar um að aðstoða þig við val á hagstæðustu leiðinni. Einstaklingar fá allt að 90% fjármögnun í nýjum bíl og getur útborgun verið í formi peninga eða uppítökubíls og samningstími sveigjanlegur. Þú getur fundið nýja bíla til sölu á lager eða í pöntun í Vefsýningarsal Brimborgar og þegar þú finnur bílinn þá sendir þú inn fyrirspurn með ósk um tilboð, uppítöku eða útreikning á bílaláni.

Vefsýningarsalur nýrra bíla

Bílalán notaðra bíla

Bílalán er einföld og þægileg leið til að eignast nýjan eða notaðan bíl og sjá söluráðgjafar Brimborgar um allt ferlið fyrir þig. Bílalán fyrir notaða bíla fást hjá öllum fjármögnunarfyrirtækjum og sjá söluráðgjafar Brimborgar um að aðstoða þig við val á hagstæðustu leiðinni. Einstaklingar fá allt að 90% fjármögnun og er lánstími sveigjanlegur að teknu tilliti til lánstímans og aldurs bílsins. Útborgun getur verið í formi peninga eða uppítökubíls.

Þú getur fundið notaða bíla til sölu í Vefsýningarsal Brimborgar og þegar þú finnur bílinn þá sendir þú inn fyrirspurn með ósk um tilboð, uppítöku eða útreikning á bílaláni.

Vefsýningarsalur (leitarvél) notaðra bíla

Hvernig fæ ég bílafjármögnun?
Þegar þú hefur fundið draumabílinn aðstoða söluráðgjafar Brimborgar þig við að velja hagstæðustu leiðina og senda inn umsókn um fjármögnun hjá því fjármögnunarfyrirtæki sem þú velur. Fjármögnunarferlið er einfalt, söluráðgjafi sendir umsókn, þú samþykkir heimild til upplýsingagjafar rafrænt og færð svar um hæl. Þú undirritar lánasamninginn við afhendingu á nýja bílnum og við sjáum um vinnuna fyrir þig. Fáðu ráðgjöf hjá söluráðgjafa Brimborgar hvaða fjármögnun er hagstæðust fyrir þig.

Hversu langur samningstími er í boði?
Samningstíminn er sveigjanlegur og fer eftir því hvort þú kaupir nýjan eða notaðan bíl en söluráðgjafar Brimborgar veita allar upplýsingar. Þú getur á auðveldan máta greitt inn á lánið á samningstíma án þess að að borga uppgreiðslu- eða umframgreiðslugjald. Vextir á bílalánum eru óverðtryggðir.

Útborgun með uppítökubíl
Bílafjármögnun krefst a.m.k 10% útborgunar sem getur verið í formi peninga eða uppítöku á notuðum bíl sem þú átt fyrir. Litið er á uppítökubílinn sem útborgun og oft dugar það til að mismuninn sé hægt að brúa með bílafjármögnun. Söluráðgjafi Brimborgar útbýr bæði eigendaskipti og afsal, tilkynnir eigendaskiptin til Samgöngustofu og upplýsir tryggingarfélög og eigendabreytingu.

Þarf ég að fara í greiðslumat?
Ef lánsfjárhæð fer yfir tiltekna upphæð fyrir einstakling og tvöfalda þá upphæð fyrir sambúðarfólk þarftu að fara í rafrænt greiðslumat sem þú getur auðveldan máta undirritað í símanum þínum. Söluráðgjafar Brimborgar veita þér allar upplýsingar.

Get ég fært fjármögnun af gamla bílnum yfir á nýjan bíl?
Þú getur á auðveldan máta skipt um bíl og fengið sameingingarlán. Þetta er ódýrari kostur heldur en að greiða upp gamla lánið og taka nýtt lán. Ef þú átt bíl sem er með bílalán hjá fjármögnunarfyrirtæki og vilt skipta honum upp í nýjan bíl aðstoða söluráðgjafar Brimborg þig við að sækja um sameiningarlán og velja hagstæðustu leiðina.

Hagstæð græn fjármögnun fyrir rafbíla, og Plug-in Hybrid/tengiltvinn rafbíla
Með hagstæðri grænni fjármögnun greiðir þú oft engin eða lægri lántökugjöld við fjármögnun nýrra rafmagnaðra bíla og stundum eru lægri vextir í boði. Söluráðgjafar Brimborgar veita þér allar upplýsingar.

Fjármögnun bílakaupa fyrirtækja
Bílalán er einföld og þægileg leið fyrir fyritækir til að eignast nýjan bíl. Bílalán fyrir nýja bíla fást hjá öllum fjármögnunarfyrirtækjum og sjá söluráðgjafar Brimborgar um að aðstoða þig við val á hagstæðustu leiðinni fyrir þitt fyrirtæki. Útborgun verið í formi peninga eða uppítökubíls og lánstími og útborgunarhlutfall í samræmi við reglur fjármögnunarfyrirtækja. Fyrirtæki hafa kost á rekstrarleigu sem er blanda af fjármögnun og flotastýringu eða geta nýtt sér langtímaleigu hjá Brimborg.

Ertu að spá í bílalánum út af nýjum bíl? Sendu fyrirspurn þegar þú hefur fundið rétta bílinn í Vefsýningarsalnum
 
 
Ertu að spá í bílalánum út af notuðum bíl? Sendu fyrirspurn þegar þú hefur fundið rétta bílinn í Vefsýningarsalnum
 
Vefspjall