Ein breiðasta plug-in hybrid lína landsins
Volvo hefur lofað að allir þeirra bílar verði rafvæddir árið 2019. Brimborg bíður ekki boðanna og býður nú fimm gerðir plug-in hybrid (tengil tvinn) bíla frá Volvo. Með plug-in hybrid (tengil tvinn) þá getur þú til dæmis hlaðið rafhlöðu bílsins heima hjá þér eða á vinnustað og hefur alltaf þann kost að aka á hefðbundinni vél ef rafmagnið klárast.
Hjá okkur kallast plug-in vélarnar T8 Twin. Plug-in hybrid (tengil tvinn) sameinar kosti öflugs rafmótors og hefðbundinnar vélar. Plug-in hybrid vélbúnaður Volvo færir þér þannig lága eldsneytiseyðslu, lágmarks kolefnislosun og frábæra snerpu.
Viðbótar ávinningur af því að tengja saman rafmótor og hefðbundna vél er fjórhjóladrif sem er í öllum hybrid bílum Volo og hentar auðvitað einstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður.
Markmið Volvo Cars með rafvæðingu allra bílvéla sinna snýst um að vernda heiminn sem við búum í - og til að takast á við þau vandamál sem framtíðin ber í skauti sér.
Ótrúlegt úrval plug-in bíla
Hér fyrir neðan er nánari lýsing á fimm gerðum Volvo plug-in bíla sem eru ótrúlega sparneytnir, vistvænir og allt að 407 hestöfl.
Verð á Volvo plug-in hybrid (tengil tvinn) er frá 5.490.000 kr.
Volvo XC90
Volvo XC90 T8 TWIN AWD er öflugur jeppi og sá stærsti í Volvo plug-in fjölskyldunni. Vélin er 16 ventla bensínvél með einni túrbínu, einum keflablásara (supercharger) og rafmótor. Vélin er 407 hestöfl með hröðun frá 0-100 km á 5,6 sekúndum, 640 Nm í tog og CO2 losun er 49gr/km.
Volvo XC90 er með 8 gíra sjálfskiptingu. Eldsneytiseyðsla XC90 T8 TWIN AWD er gefin upp í blönduðum akstri 2,1 l/100 km miðað við akstur á bensíni og rafmagni.
Volvo XC90 T8 Twin engine verð frá 9.190.000-
Volvo XC60
Volvo XC60 T8 TWIN AWD er einnig öflugur jeppi og er sá nýjasti í Volvo plug-in fjölskyldunni. Vélin er 16 ventla bensínvél með einni túrbínu, einum keflablásara (supercharger) og rafmótor. Vélin er 407 hestöfl með hröðun frá 0-100 km á 5,3 sekúndum, 640 Nm í tog og CO2 losun er 49 gr/km. XC60 T8 AWD er með 8 gíra sjálfskiptingu.
Eldsneytiseyðsla XC60 T8 TWIN AWD er gefin upp í blönduðum akstri 2,1 l/100 km miðað við akstur á bensíni og rafmagni.
Volvo XC60 T8 Twin engine AWD verð frá 7.490.000-
Volvo S90
Volvo S90 T8 TWIN AWD er sannkallaður lúxusfólksbíll með plug-in vél Volvo. Vélin er 16 ventla bensínvél með einni túrbínu, einum keflablásara (supercharger) og rafmótor. Vélin er 407 hestöfl með hröðun frá 0-100 km á 4,8 sekúndum, 640 Nm í tog og CO2 losun er 46gr/km. Volvo S90 T8 er með 8 gíra sjálfskiptingu.
Eldsneytiseyðsla S90 T8 TWIN AWD er gefin upp í blönduðum akstri 2,0 l/100 km miðað við akstur á bensíni og rafmagni.
Volvo S90 T8 Twin AWD verð frá 7.990.000-
Volvo V90
Volvo V90 T8 TWIN AWD er station útgáfan eða svokallaður herragarðsvagn og er hluti af plug-in fjölskyldunni. Vélin er 16 ventla bensínvél með einni túrbínu, einum keflablásara (supercharger) og rafmótor. Vélin er 407 hestöfl með hröðun frá 0-100 km á 4,8 sekúndum, 640 Nm í tog og CO2 losun er 46gr/km. Volvo V90 T8 er með 8 gíra sjálfskiptingu.
Eldsneytiseyðsla V90 T8 TWIN AWD T8 AWD er gefin upp í blönduðum akstri 2,0 l/100 miðað við akstur á bensíni og rafmagni.
Volvo V90 T8 Twin Engine AWD verð frá 8.290.000-
Volvo V60
Volvo V60 D6 TWIN AWD er með dísil vél með einni túrbínu, einum keflablásara (supercharger) og rafmótor. Samtals er vélin 290 hestöfl með hröðun frá 0-100 km á 6,0 sekúndum í Power mode, 640 Nm í tog og CO2 losun er 48gr/km. Volvo V60 D6 er með 6 gíra sjálfskiptingu.
Eldsneytiseyðsla V60 D6 TWIN AWD er gefin upp í blönduðum akstri 1,8 l/100 km miðað við akstur á dísil og rafmagni.
Volvo D6 Twin AWD verð frá 5.490.000-