Fara í efni

Opel Movano Electric 100% rafsendibíll uppfyllir skilyrði um allt að 33% rafbílastyrk

Opel Movano Electric 100% rafsendibíll uppfyllir skilyrði um allt að 33% rafbílastyrk
Nýr Opel Movano Electric uppfyllir skilyrði Orkusjóðs um rafbílastyrk fyrir allt að 33% af bílverði án vsk.

RAFBÍLASTYRKUR FYRIR ALLT AÐ 33% AF BÍLVERÐI ÁN VSK. UMSÓKNARFRESTUR TIL 11. JÚNÍ 2024
Mikilvægt er að sækja um fyrir 11. júní. Nú er opið fyrir umsóknir um styrki fyrir stærri rafmagnssendibíla hjá Orkusjóði. Opel Movano Electric er fáanlegur í flokki stærri rafmagnssendibíla í vörubílaflokki N2 yfir 3.500 kg. Ein milljón er greidd í styrk fyrir hvert tonn leyfðrar heildarþyngdar atvinnubíls en þó ekki hærri en 33% af bílverði án vsk. og að hámarki 15 millj. kr.

Forsendur þess að bíllinn sé gjaldgengur fyrir styrkinn eru: að leyfð heildarþyngd bíls sé yfir 3.5 tonn, bíllinn sé nýskráður í ökutækjaflokknum N2 og nýskráður innan 12 mánaða frá úthlutun styrks. Við umsókn þarf að áætla akstur, eyðslu og CO₂ losun á jarðefnaeldsneytisbíl sem ella hefði verið notaður í verkefnið og þar af leiðandi losunarsparnað. Söluráðgjafar Opel veita viðskiptavinum ráðgjöf um útreikning á losun á CO₂. Fyrirtæki í atvinnurekstri geta að auki innskattað 24% virðisaukaskatt af kaupverðinu ásamt því að innskatta allan rekstrarkostnað sendibílsins ef bíllinn er á rauðum númerum.

VERÐDÆMI ÁN VSK MEÐ RAFBÍLASTYRK
Opel Movano Electric í ökutækjaflokki N2 (4.250 kg í heildarþyngd) með allt að 424 km drægni kostar frá 12.290.000 kr. m. vsk. og 9.911.290 kr. án vsk. Ef sótt er um rafbílastyrk fyrir 11. júní 2024 er mögulegt að fá styrk sem nemur allt að 33% af kaupverði án vsk. Kostnaður kaupanda er þá einungis 6.640.565 kr. án vsk með rafbílastyrk. Söluráðgjafar Opel veita nánari upplýsingar.

Skoðaðu Movano Electric í Vefsýningarsal

ALLT AÐ 424 KM DRÆGNI Á ÍSLENSKRI RAFORKU
Opel Movano Electric rafmagnssendibíll er með öfluga 110 kWh drifrafhlöðu og allt að 424 km drægni skv. WLTP mælingu.

55 MÍNÚTUR Í 80% HLEÐSLU Í 150 kW HRAÐHLEÐSLUSTÖÐ
Opel Movano Electric er með 110 kWh drifrafhlöðu og 11 kW þriggja fasa, innbyggðri hleðslustýringu fyrir AC hæghleðslu. Því er auðvelt að hlaða yfir nótt þegar bíllinn er ekki í notkun. Á daginn á milli ferða í hvíldarhléum er auðvelt að skjóta inn á rafhlöðuna í hraðhleðslu (DC) ef þörf er á aukaorku. Í hraðhleðslu (DC) leyfir hleðslustýringin allt að 150 kW hraðhleðslustöð sem nýtist til hleðslu í allt að 80% af hámarksgetu drifrafhlöðunnar og tekur það um 55 mínútur að ná þeirri orku frá nánast tómri rafhlöðunni. Það þýðir um 150 – 180 km viðbótardrægni á hálftíma svo dæmi sé tekið.

TVÆR LENGDIR OG FÁANLEGUR MEÐ HÁÞEKJU
Opel Movano Electric er fáanlegur í tveimur lengdum L3 og L4 ásamt því að vera fáanlegur með háþekju. Lengd hleðslurýmis er allt að 3.705m. og hæð hleðslurýmis er allt að 2.172m. með háþekju.

EINSTAKT HLEÐSLURÝMI OG GOTT AÐGENGI
Hleðslurýmið í Opel Movano Electric er einstaklega aðgengilegt og þægilegt og meðal þeirra stærstu á markaðnum. Hleðslurýmið er allt að 17 m³ og rúmar allt að 5 vörubretti. Aðgengi að farmi er einnig gott að aftan þar sem tvískipt afturhurð með 180° opnun, festilykkjur í farangursrými og hlífðarklæðning í hálfa hæð í hliðum hleðslurýmis (L4) er staðalbúnaður. Opel Movano Electric er að sjálfsögðu fáanlegur með rennihurðum á báðum hliðum.

ÖFLUG BURÐAR- OG DRÁTTARGETA
Opel Movano Electric er með öflugri burðar- og dráttargetu. Burðargetan í Opel Movano Electric er allt að 1.385 kg og dráttargetan er framúrskarandi eða allt að 2.400 kg.

RÍKULEGUR ÖRYGGISBÚNAÐUR
Opel Movano Electric er með ríkulegum öryggisbúnaði og má þar helst nefna: bakkmyndavél í margmiðlunarskjá, nálægðarskynjurum að aftan, aðvörun vegna gangandi vegfarenda, veglínuskynjun, sjálfvirkri neyðarhemlun sem greinir gangandi og hjólandi vegfarendur og nýju ESC stöðugleikakerfi með hleðslugreiningu og hliðarvindsaðstoð yfir 65 km/klst.

ÞÝSK GÆÐI MEÐ 7 ÁRA ÁBYRGÐ OG 8 ÁRA ÁBYRGÐ Á DRIFRAFHLÖÐU
Þýsk gæði Opel Movano Electric eru einstök, 7 ára víðtæk ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustuferli framleiðenda.

ORKUSKIPTIN MEÐ OPEL OG BRIMBORG
Viðskiptavinir geta stólað á fyrsta flokks gæði og fyrirmyndarþjónustu Opel hjá Brimborg. Framúrskarandi drægni, góður hleðsluhraði, fagleg þjónusta og ráðgjöf við kaupendur og við uppsetningu hleðsluinnviða. Viðskiptavinir njóta sérþekkingar og sérkjara Brimborgar í hleðslulausnum og uppsetningu ásamt sérkjörum á hraðhleðslustöðvum Brimborgar Bílorku. Þannig draga þeir úr neikvæðum áhrifum á umhverfið með umhverfisvænni, íslenskri orku með lágu kolefnisspori.

VÆNLEGUR KOSTUR OG LÆGRI REKSTRARKOSTNAÐUR
Engin CO₂ losun, öflug drifrás, 110 kWh rafhlaða með framúrskarandi drægni, góður hleðsluhraði og 7 ára ábyrgð á bíl og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu gerir Opel Movano Electric að vænlegum kosti. Aksturinn er hljóðlaus og án titrings og rekstrarkostnaður allt að 58% lægri á ársgrundvelli en í sambærilegum bíl sem gengur fyrir jarðefnaeldsneyti.

UPPITÍMINN SKIPTIR MÁLI
Brimborg leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu þar sem hraði, hagkvæmni og þægindi eru í fyrirrúmi svo tryggt sé að Opel rafsendibíllinn sé alltaf til þjónustu reiðubúinn. Þjónustan er byggð á áralangri reynslu sérfræðinga Brimborgar í litlum og stórum sendibílum og sérfræðiþekkingar við rekstur og uppbyggingu hleðsluinnviða fyrir rafbíla. Hátt þjónustustig Brimborgar tryggir framúrskarandi uppitíma sem skiptir miklu máli í rekstri.

C1 ÖKURÉTTINDI TIL AÐ AKA OPEL MOVANO ELECTRIC
Ökumaður þarf að hafa C1 ökuréttindi til að aka Opel Movano Electric í ökutækjaflokknum N2. 

HÆGT AÐ SKOÐA ÚRVALIÐ AF OPEL MOVANO ELECTRIC Í VEFSÝNINGARSAL BRIMBORGAR
Í Vefsýningarsal Brimborgar er að finna Opel Movano Electric rafmagnssendibíla sem eru á leiðinni til landsins. Söluráðgjafar Opel veita viðskiptavinum ráðgjöf við valið á rétta bílnum, upplýsingar um rafbílastyrki sem eru í boði og aðstoð við útreikning á losun á CO₂ fyrir umsókn um styrk. Hægt er að skoða úrvalið í Vefsýningarsalnum og senda fyrirspurn sem söluráðgjafi svarar um hæl. Viðskiptavinir geta auðveldlega breytt bílum í pöntun sem hentar þeirra þörf með aðstoð söluráðgjafa Opel.

Skoðaðu Movano Electric í Vefsýningarsal

NÁNARI UPPLÝSINGAR UM OPEL MOVANO ELECTRIC
Nánari upplýsingar um Opel Movano Electric má finna á vef Opel á Íslandi eða hjá söluráðgjafa Opel í sýningarsal Opel við Bíldshöfða 8 í Reykjavík eða við Tryggvabraut 5 á Akureyri.

Kynntu þér Movano Electric


Vefspjall