Nýr Opel Vivaro-e rafmagnssendibíll kominn í sölu hjá Brimborg
Brimborg kynnir glænýjan Opel Vivaro-e 100% hreinan rafmagnssendibíl með allt að 330 km drægni á rafmagni. Vivaro-e er fáanlegur í þremur lengdum með 7 ára víðtækri verksmiðjuábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Eigum örfáa bíla til afhendingar strax!
- ALLT AÐ 330 KM DRÆGNI Á 100% HREINU RAFMAGNI
- HRAÐHLEÐSLA ALLT AÐ 100 KW
- ÞRJÁR LENGDIR; L1, L2 OG L3
- RÚMAR AUÐVELDLEGA ÞRJÚ VÖRUBRETTI
- VAL UM TVÆR RAFHLÖÐUSTÆRÐIR; 50 KWH EÐA 75 KWH
Sala á nýjum Opel Vivaro-e rafsendibílnum er nú þegar hafin í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg.
Smelltu hér til að skoða Opel Vivaro-e
Smelltu hér til að skoða úrval í Vefsýningarsal
ALLT AÐ 330 KM DRÆGNI Á 100% HREINU RAFMAGNI
Opel Vivaro-e sendibíll knúinn 100% rafmagni er með 50-75 kWh drifrafhlöðu. Drægni bílsins skv. WLTP mælingu er framúrskarandi eða allt að 330 km. Opel Vivaro-e er fáanlegur með 7,4 kW eða 11 kW innbyggðri hleðslustýringu.
HRAÐHLEÐSLA Í 80% DRÆGNI Á AÐEINS 32 MÍNÚTUM
Það er einfalt og fljótlegt að hlaða Opel Vivaro-e rafmagnssendibíl heima, í vinnu og á hraðhleðslustöðvum. Þú hleður 50 kWh drifrafhlöðuna í Opel Vivaro-e á 32 mínútum í 80% drægni í 100kW hraðhleðslustöð og 75 kWh drifrafhlöðuna í Opel Vivaro-e á 48 mínútum í 80% drægni.
Smelltu hér til að skoða Opel Vivaro-e
Smelltu hér til að skoða úrval í Vefsýningarsal
ÞRJÁR LENGDIR; L1, L2 OG L3
Opel Vivaro-e er lipur og snar í snúningum. Hann er fáanlegur í þremur lengdum L1, L2 og L3 og býður upp á fullkomið jafnvægi á milli hleðslugetu í lengd, burðargetu, rúmmáli og hæð. Hann kemst t..a.m í allar venjulegar bílageymslur og ekki þarf að hafa áhyggjur af of háu þaki.
ÞÆGILEG HLEÐSLUHÆÐ, RÚMAR AUÐVELDLEGA ÞRJÚ VÖRUBRETTI
Opel Vivaro-e er hábyggður og er því með þægilega hleðsluhæð sem auðveldar lestun og affermingu. Rúmmál hleðslurýmis er allt að 6,6 m3 og rúmar auðveldlega þrjú vörubretti.
FÁANLEGUR MEÐ RENNIHURÐ Á BÁÐUM HLIÐUM
Opel Vivaro-e er fáanlegur með rennihurðum á báðum hliðum. Stórar rennihurðar á hliðum með víðri opnun og lokunarvörn gera það að verkum að hleðsla og afferming er sérlega auðveld og eykur öryggi og afköst notenda.
ÞÝSK GÆÐI MEÐ MEÐ 7 ÁRA VÍÐTÆKRI ÁBYRGÐ Á BÍL OG 8 ÁR Á DRIFRAFHLÖÐU
Þýsk gæði Opel rafmagnssendibíla eru staðfest með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustuferli framleiðanda. Tryggðu þér þýsk gæði Opel!
ÚRVAL OPEL VIVARO-E Í VEFSÝNINGARSAL BRIMBORGAR
Brimborg hefur hafið sölu á nýjum Opel Vivaro-e 100% rafmagnssendibíl í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg. Sýningar- og reynsluakstursbílar eru í nýjum sýningarsal Opel hjá Brimborg á Bíldshöfða 8.
Í Vefsýningarsal er að finna alla Opel Vivaro-e rafmagnssendibíla í pöntun. Þegar draumabíllinn er fundinn er send fyrirspurn beint úr Vefsýningarsalnum sem söluráðgjafi svarar um hæl. Viðskiptavinir geta auðveldlega breytt bílum í pöntun að sínum smekk með aðstoð söluráðgjafa Brimborgar.
OPEL VIVARO-E RAFMAGNSSENDIBÍLL KOSTAR FRÁ 5.090.000 KR OG ER FÁANLEGUR Í ÞREMUR LENGDUM
Brimborg hefur lagt sífellt meiri áherslu á forpöntun nýrra bíla sem hefur gert það að verkum að bílverð lækkar vegna lægri birgðakostnaðar og á sama tíma geta kaupendur hannað bílana nákvæmlega að sínum óskum hvað varðar lit, innréttingu og búnað. Söluráðgjafar Opel aðstoða viðskiptavini við að setja saman réttu útfærsluna.