Nýr Opel Mokka-e 100% rafbíll kominn í sölu hjá Brimborg
Brimborg kynnir nýjan Opel Mokka-e 100% hreinan rafbíl með allt að 328 km drægni á hreinu rafmagni og fjarstýrða forhitun sem tryggir alltaf heitan bíl. Þú færð Opel Mokka-e með 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.
- Allt að 328 km drægni á 100% hreinu rafmagni
- 80% drægni á 30 mínútum í 100 KW hraðhleðslu
- Fjarstýrð forhitun tryggir alltaf heitan bíl
- Djörf stílhrein samtímahönnun
- Þýsk gæði með 7 ára ábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu
Smelltu hér til að skoða Opel Mokka-e
Smelltu hér til að skoða úrval í Vefsýningarsal
ALLT AÐ 332 KM DRÆGNI Á 100% HREINU RAFMAGNI
Opel Mokka-e 100% hreinn rafbíll er með 50 kWh drifrafhlöðu og varmadælu sem endirnýtir orku fyrir miðstöðina og því er drægni bílsins skv. WLTP mælingu framúrskarandi eða 328 km.
30 MÍNÚTUR Í 80% DRÆGNI Í 100 KW HRAÐHLEÐSLUSTÖÐ
Það er fljótlegt og einfalt að hlaða Opel Mokka-e 100% rafbíl heima, í vinnu og á hraðhleðslustöðvum. Hægt er að fullhlaða á 5-7,5 klst í öflugri heimahleðslustöð og aðeins tekur frá 30 mínútum að hlaða nánast tóma drifrafhlöðuna í 80% drægni í 100 kW hraðhleðslustöð.
Smelltu hér til að skoða Opel Mokka-e
Smelltu hér til að skoða úrval í Vefsýningarsal
DJÖRF, STÍLHREIN SAMTÍMAHÖNNUN
Hönnun Mokka-e er djörf og stílhrein í takt við samtímann. Tignarlegur framendi, djarft útlit og fágaðar innréttingar með gæðaefnum einkenna Opel Mokka-e. Komdu og skoðaðu!
ÞÝSK GÆÐI MEÐ 7 ÁRA ÁBYRGÐ Á BÍL OG 8 ÁRA ÁBYRGÐ Á DRIFRAFHLÖÐU
Allir Opel bílar eru í boði með víðrækri 7 ára ábyrgð á bíl og sérstakri 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi ferli framleiðenda hvað varðar þjónustuskoðanir.
ÚRVAL OPEL MOKKA-E Í VEFSÝNINGARSAL BRIMBORGAR
Brimborg hefur hafið sölu á nýjum Opel Mokka-e 100% rafbíl í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg. Sýningar- og reynsluakstursbílar eru í nýjum sýningarsal Opel hjá Brimborg á Bíldshöfða 8.
Í Vefsýningarsal er að finna alla Opel Mokka-e rafbíla í pöntun. Þegar draumabíllinn er fundinn er send fyrirspurn beint úr Vefsýningarsalnum sem söluráðgjafi svarar um hæl. Viðskiptavinir geta auðveldlega breytt bílum í pöntun að sínum smekk með aðstoð söluráðgjafa Brimborgar.
OPEL MOKKA-E RAFBÍLL KOSTAR FRÁ 4.550.000 KR.
Brimborg hefur lagt sífellt meiri áherslu á forpöntun nýrra bíla sem hefur gert það að verkum að bílverð lækkar vegna lægri birgðakostnaðar og á sama tíma geta kaupendur hannað bílana nákvæmlega að sínum óskum hvað varðar lit, innréttingu og búnað. Söluráðgjafar Opel aðstoða viðskiptavini við að setja saman réttu útfærsluna.