Mazda MX-30 100% hreinn rafbíll frumsýndur á Akureyri
Mazda MX-30 100% hreinn rafbíll verður frumsýndur dagana 16.-21. nóvember hjá Brimborg Akureyri við Tryggvabraut 5. Komdu í reynsluakstur!
-
Verð frá 4.090.000 kr.
-
Sparaðu og keyrðu á íslenskri orku
-
Ríkulegur búnaður með varmadælu
-
Forhitun tryggir heitan bíl
-
Lágt mengunarfótspor
-
Umhverfisvæn gæðaefni
-
Mazda e-SkyActiv aksturstækni
- Há sætisstaða, einstök hurðaopnun
Nýr Mazda MX-30 er 100% hreinn rafbíll á einstaklega hagstæðu verði sem gerir þér kleift að njóta þeirra þæginda, sparnaðar og jákvæðra umhverfisáhrifa sem rafbílar veita í bæjarsnattinu. Glænýr Mazda MX-30 er búinn ríkulegum staðalbúnaði t.a.m bakkmyndavél, forhitun sem tryggir alltaf heitan bíl, vegaleiðsögn, hárri sætisstöðu og japönskum Mazda gæðum með víðtækri ábyrgð og innbyggðri varmadælu.
Einfaldaðu líf þitt, njóttu allra þeirra þæginda sem Mazda MX-30 rafbíllinn veitir með eldsnöggri, ódýrri, orkuáfyllingu heima eða í vinnu og lægri rekstrarkostnaði með umhverfisvænni, íslenskri orku.
Einfaldaðu bílaskiptin. Láttu okkur sjá um allt, uppítöku á gamla bílnum, hagstæða fjármögnun, tilboð í hleðslustöð og ókeypis ráðgjöf við uppsetningu hleðslustöðvar.
Mazda MX-30 kostar aðeins frá 4.090.000 kr. og aðeins 34.377 kr. á mánuði með uppítöku á gamla bílnum eða innborgun og hagstæðri grænni fjármögnun á lægri vöxtum eða lægra lántökugjaldi. Við tökum allar gerðir eldri bíla uppí og mánaðargreiðslan miðast við uppítöku á eldri bíl á 1.400.000 kr. og 8 ára lán. Hlutfallstaða kostnaðar í þessu dæmi er 5,58%.
VIRÐUM 2 METRA REGLUNA. TAKMARKAÐUR FJÖLDI Í SÝNINGARSAL Á HVERJUM TÍMA.