Fyrsti Citroën ë-C4 100% rafbíllinn afhentur
Jón Ragnar fékk á dögunum afhentan fyrsta Citroën ë-C4 Shine rafbílinn frá Brimborg. Jón Ragnar er mikill Citroën aðdáandi og um leið og hann frétti að það væri að koma 100% rafbíll frá Citroën fannst honum engin spurning að það væru næstu bílakaup.
Við óskum Jóni Ragnari innilega til hamingju með nýja bílinn!
Á myndinni eru Jón Ragnar og Magnús söluráðgjafi hjá Brimborg.
Citroën ë-C4 100% rafbíll
- 350 km drægni á hreinu rafmagni
- 30 mínútur í 80% drægni í 100kW hraðhleðslustöð
- Snjallmiðstöð og fjarstýrð forhitun tryggir ávallt heitan bíl
- 10" snertiskjár
- 18" álfelgur
- Hraðastillir
- Nálægðarskynjari
- 7 ára ábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu
Citroën ë-C4 100% rafbíll er með 50 kWh drifrafhlöðu og varmadælu sem endurnýtir orku fyrir miðstöðina og skilar því framúrskarandi drægni skv. WLTP mælingu eða 350 km á 100% hreinu rafmagni. Citroën ë-C4 er framdrifinn, frábær í akstri í snjó og er þvi einstaklega hentugur við íslenskar aðstæður. Citroën ë-C4 er með 15,6 cm veghæð sem skapar þægilegt aðgengi og þegar inn er komið blasir við einstaklega notendavænt innra rými með breiðum, mjúkum sætum og snjallmiðstöðin og fjarstýrð forhitun tryggir ávallt heitan bíl þegar lagt er af stað. Nýr Citroën ë-C4 kostar aðeins frá 4.090.000 kr og með hagstæðri grænni fjármögnun á lægri vöxtum eða lægra lántökugjaldi og uppítöku á eldri bíl er auðvelt að taka þátt í orkuskiptum framtíðarinnar. Keyrðu um á 100% rafmagni!
7 ára ábyrgð og 8 ár á drifrahlöðu
Örugg gæði Citroën ë-C4 eru staðfest með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðunni. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi ferli framleiðanda hvað varðar þjónustuskoðanir. Tryggðu þér örugg gæði Citroën!