Opel nýskráningar aukast um 113%, 98% nýskráðra Opel bíla knúnir rafmagni
Brimborg tók við Opel umboðinu 1. janúar 2022 og á fyrstu fimm mánuðum ársins eru nýskráningar Opel bíla 49 sem er 113% aukning frá sama tíma fyrir ári. Opel Corsa-e rafbíllinn er vinsælasti Opel bíllinn á árinu en rafknúnir Opel sendibílar eru einnig vinsælir.
Fleiri gerðir rafbíla frá Opel eru væntanlegir til Íslands og mun Brimborg kynna nýjan Opel Mokka-e rafbíl í júnímánuði. Í kjölfarið verður kynntur rafmagnaður Opel Grandland fjórhjóladrifinn tengiltvinnbíll.
Opel er þýskt hágæða bílamerki og leggur þýski bílaframleiðandinn Opel einbeitta áherslu á þróun rafmagnaðra bíla með djarfri, stílhreinni, samtímahönnun. Með rafmögnuðum áherslum stefnir Opel bílamerkið að því að vera í fararbroddi í orkuskiptum á Íslandi og hefur framleiðandinn markað þá stefnu að allar gerðir Opel bíla verði fáanlegar í rafmagnaðri útfærslu árið 2024.
Smelltu til að skoða Opel á Íslandi
Smelltu til að skoða nýja Opel í Vefsýningarsalnum
Nýir og notaðir Opel bílar í Reykjavík og á Akureyri
Brimborg hefur nú opnað nýjan sýningarsal fyrir Opel bíla á Bíldshöfða 8 í Reykjavík og á Tryggvabraut 5 á Akureyri og einnig er hægt að gera hagstæð kaup á nýjum Opel bílum í Vefsýningarsal Brimborgar á netinu eða leigja í langtímaleigu. Nýr vefur Opel á Íslandi er, www.opelisland.is, Vefsýningarsalur er aðgengilegur beint af nýja Opel vefnum og verðlista yfir Opel vörulínuna má finna á Opel vefnum.
Brimborg tekur notaða Opel bíla upp í nýja og hefur einnig úrval notaðra Opel bíla til sölu sem skoða má í Vefsýningarsal notaðra bíla hjá Brimborg.
Smelltu til að skoða notaða Opel í Vefsýningarsalnum
Öflugri áhersla á sölu, varahluti, þjónustu og ábyrgðarmál
Brimborg býður Opel rafbíla með meiri staðalbúnaði, á hagstæðara verði og hefur eflt varahluta- og viðgerðarþjónustu og býður lengri, 7 ára víðtæka verksmiðjuábyrgð á Opel auk þess sem drifrafhlöður Opel rafbíla eru með 8 ára verksmiðjuábyrgð.
Ríkulegt úrval Opel sendibíla í 100% rafmagnsútfærslu
Opel býður upp á ríkulegt úrval sendibíla í 100% rafmagnsútfærslu með allt að 330 km drægni. Opel sendibílarnir eru fáanlegir í mörgum stærðum, útfærslum og með mismunandi eiginleika sem henta við öll dagleg störf. Næsta sending rafsendibíla frá Opel er væntanleg til landsins í júní 2022 og eru þeir einnig boðnir með 7 ára verksmiðjuábyrgð á bíl og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.
Smelltu og kynntu þér Opel sendibíla
Brimborg býður strax víðtækari þjónustu við Opel
Nú þegar Brimborg hefur tekið yfir sölu nýrra Opel bíla, varahluta-, viðgerðar- og ábyrgðarþjónustu býður Brimborg Opel kaupendum fólks- og atvinnubíla víðtækari þjónustu sem felst m.a. í:
- 7 ára verksmiðjuábyrgð á bíl eða að 140 þús. km
- 8 ára verksmiðjuábyrgð á drifrafhlöðu eða að 160 þús. km
- Ókeypis lánsbíl við ábyrgðarviðgerð
- Vegaaðstoð um land allt
- Uppítöku á öllum gerðum notaðra bíla
- Langtímaleigu á nýjum Opel bílum
- Brimborg tekur nú þegar á móti Opel bílum í þjónustu og ábyrgðarviðgerðir
Brimborg stækkar þjónustunet Opel
Brimborg er þegar byrjað að taka við Opel bílum í þjónustu- og ábyrgðarviðgerðir og varahlutir í Opel eru þegar fáanlegir í Brimborg. Brimborg þjónustar Opel bíla á Opel verkstæðinu við Bíldshöfða 8 og hjá Vélalandi í Jafnaseli 6 í Breiðholti og hjá Vélalandi í Dalshrauni 5 í Hafnarfirði. Tímapantanir á verkstæðum eru einfaldar í gegnum bókunarkerfi á vefnum opelisland.is
Brimborg tekur vel á móti öllum gömlum sem nýjum Opel viðskiptavinum og nánari upplýsingar um nýja Opel bíla og þjónustu má finna á nýja Opel vefnum, www.opelisland.is, á netspjalli Brimborgar hér hægra megin niðri eða í síma 5157000.