NETHAMAR ER NÝR ÞJÓNUSTUAÐILI BRIMBORGAR
06.02.2019
Nethamar er nýr þjónustuaðili Brimborgar í Vestmannaeyjum.
Það er okkur sönn ánægja að segja frá því að Nethamar er nýr þjónustuaðili Brimborgar í Vestmannaeyjum. Undirritaður hefur verið samstarfssamningur á milli Brimborgar og Nethamars í Vestmannaeyjum.
Bifreiðaverkstæðið Nethamar er með því orðin viðurkenndur þjónustuaðili fyrir öll fólks- og sendibíla merki Brimborgar Ford, Volvo, Mazda, Citroën og Peugeot.
Við viljum með samningi þessum auka þjónustuna við okkar fjölmörgu viðskiptavini í Vestamannaeyjum en salan á merkjum Brimborgar hefur aukist mikið undanfarin ár á þessu svæði og eiga viðskiptavinir okkar að geta sótt sér alla þjónustu hjá viðurkenndum þjónustuaðila í heimabyggð.
Starfsmenn Nethamars munu taka fagnandi á móti ykkur.