Fara í efni

100% traustar km stöður bíla Brimborgar og bílaleigu félagsins, Dollar og Thrifty

100% traustar km stöður bíla Brimborgar og bílaleigu félagsins, Dollar og Thrifty
Öruggur staður til að vera á
Í samræmi við strangar kröfur okkar erlendu samstarfsaðila og í samræmi við kjörorð Brimborgar, öruggur staður til að vera á, þá geta viðskiptavinir Brimborgar verið 100% vissir um að km stöður bílaleigubíla Brimborgar eru réttar.

Brimborg er í hópi stærstu bílaumboða landsins með um 300 starfsmenn og selur þúsundir notaðra bíla á hverju ári ásamt því að vera leyfishafi á Íslandi fyrir bandarísku bílaleigurnar Dollar og Thrifty sem samanlagt eru með um 1.000 bílaleigubíla í flota sínum. Í samræmi við strangar kröfur okkar erlendu samstarfsaðila og í samræmi við kjörorð Brimborgar, öruggur staður til að vera á, þá geta viðskiptavinir Brimborgar verið 100% vissir um að km stöður bílaleigubíla Brimborgar eru réttar.

Brimborg hefur aldrei og mun aldrei eiga við kílómetrastöður bíla á nokkurn hátt og allar útleigur, skil og kílómetrastöður bílaleigubíla eru skráðar í upplýsingatæknikerfi okkar og rekjanlegar niður á bíl, kerfisnotanda (starfsmann), skráningardag og ástæðu uppfærslu. Við fögnum öllu eftirliti og bjóðum eftirlitsaðila velkomna.

Strangt eftirlit með km stöðu bílaleigubíla Brimborgar

Fjórfaldur rekjanleiki er á km stöðu bílaleigubíla Brimborgar en km eru skráðir í mjög öflugt upplýsingatæknikerfi Brimborgar og hafa allir starfsmenn skoðunaraðgang að km stöðu allra bíla sem tryggir gagnsæi.

  • Við útleigu skráir bílaleigustarfsmaður km stöðu bíls í upplýsingatæknikerfið og km staða skráist um leið á leigusamning
  • Við skil skráir bílaleigustarfsmaður km stöðu bíls í upplýsingatæknikerfið
  • Við reglubundna þjónustu skráir bifvélavirki km stöðu bíls í upplýsingatæknikerfið
  • Ökuriti frá þriðja aðila er í öllum bílaleigubílum Brimborgar og sendir ökuritinn daglega sjálfvirkar færslur um km stöðu í upplýsingatæknikerfið

Ekki er hægt að leigja út bíl né skila bíl úr leigu án þess að skrá km stöðu og ekki er hægt að skrá lægri stöðu en þegar liggur fyrir í kerfinu. Undirritaðir leigusamningar með skráðri km stöðu eru aðgengilegir hjá Brimborg í þrjú ár eftir skil leigutaka í samræmi við lög nr. 65/2015.

Í fimmta lagi tekur óháður starfsmaður á skrifstofu vikulegt, tilviljunarkennt, úrtak úr bílaflota leigunnar og sannreynir km stöðu bíla í úrtaki ásamt því að skoða leigusamninga, útleigu og skil og þjónustuskoðanir og stemmir af við daglegar ökuritaskráningar. Gögn úr því eftirliti eru vistuð á öruggum stað svo hægt að rýna síðar.

Sem leyfishafi fyrir Dollar og Thrifty sem eru í eigu Hertz samstæðunnar gengst Brimborg undir kröfur samkvæmt þeim leyfissamningum m.a. fyrirvaralausar úttektir á starfsemi bílaleigureksturs Brimborgar. Þannig úttekt var gerð á Brimborg sumarið 2017 þar sem meðal annars var farið yfir akstur og km stöðu bíla og stóðst Brimborg úttektina með láði. Margvíslegar aðrar kröfur eru gerðar eins og um gæði bílanna og ákveðinn hámarksakstur.

Að lokum er rétt að ítreka að hjá Brimborg starfa um 300 manns og ýmsir starfsmenn úr ýmsum deildum koma að skráningu km stöðu á mismunandi stigum eins og áður hefur verið lýst og allar skráningar eru rekjanlegar niður á hvern bíl, einstaka starfsmenn eða sjálfvirk kerfi eins og ökurita, dagsetningu og ástæðu fyrir uppfærslu eins og útleiga, skil, þjónusta eða ökuriti.

Gæði notaðra bílaleigubíla Dollar og Thrifty tryggt með reglulegri þjónustu

Bílaleigubílar Brimborgar fara í reglulegar þjónustuskoðanir skv. ferli framleiðanda og þegar bílaleigubílar fara í sölu þá eru þeir yfirfarnir af bifvélavirkjum Brimborgar, þeir lagfærðir, km staða staðfest, bílarnir þrifnir og að lokum settir í sölu. Með þessu ferli er tryggt að allir bílaleigubílar í sölu hjá Brimborg eru í framúrskarandi ástandi, km staðan er rétt og bílarnir hafa jafnvel fengið meiri og betri þjónustu en aðrir bílar á markaði fyrir notaða bíla.

Brimborg aðstoðar bíleigendur sem hafa keypt Procar bíla

Brimborg hefur selt Procar nýja bíla eins og mörg önnur bílaumboð. Procar hefur í flestum tilvikum selt þá bíla beint eftir notkun í bílaleigu Procar. Þeir bíleigendur sem eiga bíla af tegundum sem Brimborg er umboðsaðili fyrir og hafa keypt þá af Procar geta haft samband við starfsmenn Brimborgar sem munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að aðstoða eigendur við að komast að því hvort átt hafi verið við km stöðu bílanna. Nú þegar hafa 13 viðskiptavinir haft samband við Brimborg, sex höfðu keypt bílana af Brimborg sem hafði tekið þá uppí af Procar en hinir sjö voru keyptir beint af Procar.

Hafa skal samband á eftirfarandi hátt varðandi fyrirspurn um km stöður einstakra bíla:

  • Fyrir bíla af gerðinni Mazda, Citroën og Peugeot: Benný Ósk, sölustjóri, bennyh@brimborg.is
  • Fyrir bíla af gerðinni Ford og Volvo: Gísli Jón, sölustjóri, gjb@brimborg.is
  • Fyrir aðrar gerðir en að ofan greinir skal hafa samband við Benný Ósk.

Í fyrirspurninni þarf að koma fram nafn eiganda bílsins, sími, netfang og bílnúmer.


Vefspjall