Fara í efni

Rafbílastyrkir vegna þyngri sendibíla, pallbíla og stærri vörubíla. Umsóknarfrestur til 11. júní.

Rafbílastyrkir vegna þyngri sendibíla, pallbíla og stærri vörubíla. Umsóknarfrestur til 11. júní.
Rafbílastyrkir vegna þyngri sendibíla, pallbíla og stærri vörubíla.

Orkusjóður hefur auglýst styrki vegna þyngri hreinorku vörubíla og er umsóknarfrestur til 11. júní 2024. Við viljum benda á að nú fást styrkir fyrir atvinnubíla í ökutækjaflokkum N2 og N3 sem eru nýskráðar vörubifreiðar (yfir 3.500 kg eða frá og með 3.501 kg). Þetta opnar möguleika á að fá styrki á sendibíla í þyngri flokkum eins og rafsendibílinn E-Transit yfir 3.500 kg., Ford F150 Lightning rafpallbílinn, Opel Movano rafsendibílinn og svo alla Volvo Truck rafvörubílalínuna.

  • Ein milljón er greidd í styrk fyrir hvert tonn leyfðrar heildarþyngdar vörubifreiðar (að hámarki 15 millj. kr og ekki hærri en 33% af bílverði án vsk).
  • Leyfð heildarþyngd vörubifreiðar skal vera yfir 3.5 tonn.
  • Vörubifreið þarf að vera nýskráð í ökutækjaflokknum N2 eða N3.
  • Umsóknarfrestur er til 11. júní 2024.
  • Vörubifreiðina þarf að vera búið að nýskrá innan 12 mánaða frá úthlutun styrks.
  • Við umsókn þarf að áætla akstur, eyðslu og CO2 losun jarðefnaeldsneytisbíls sem ella hefði verið notaður í verkefnið og þar af leiðandi losunarsparnað.

Sérfræðingar Brimborgar í rafknúnum ökutækjum og jákvæðum áhrifum þeirra á umhverfið veita ráðgjöf um útreikning á losun CO2.

Lestu meira um rafbílastyrkinn hér á vef Orkustofnunar.

Úrval rafknúinna vörubifreiða



100% rafknúinn Ford sendibíll

Ford E-Transit

Hafðu samband við söluráðgjafa Ford í síma
515 7000 eða sendu tölvupóst á ford@brimborg.is.
Kíktu í kaffi hjá okkur á Bíldshöfða 6 í Reykjavík
eða á Tryggvabraut 5 á Akureyri.

100% rafknúinn Ford pallbíll
- Í skoðun með framleiðanda -

Ford F-150 Lightning

Hafðu samband við söluráðgjafa Ford í síma
515 7000 eða sendu tölvupóst á ford@brimborg.is.
Kíktu í kaffi hjá okkur á Bíldshöfða 6 í Reykjavík
eða á Tryggvabraut 5 á Akureyri.

100% rafknúninn Opel sendibíll
- Í skoðun með framleiðanda -

Opel Movano

Hafðu samband við söluráðgjafa Opel í síma
515 7000 eða sendu tölvupóst á opel@brimborg.is.
Kíktu í kaffi hjá okkur á Bíldshöfða 8 í Reykjavík
eða á Tryggvabraut 5 á Akureyri.


100% rafknúninn Volvo vörubíll

Volvo FH

Hafðu samband við söluráðgjafa Veltis í síma
510 9100 eða sendu tölvupóst á salah8@veltir.is.
Kíktu í kaffi hjá okkur að Hádegismóum 8, 110 Árbæ.

 

100% rafknúninn Volvo vörubíll

Volvo FMX

Hafðu samband við söluráðgjafa Veltis í síma
510 9100 eða sendu tölvupóst á salah8@veltir.is.
Kíktu í kaffi hjá okkur að Hádegismóum 8, 110 Árbæ.

100% rafknúninn Volvo vörubíll

Volvo FM

Hafðu samband við söluráðgjafa Veltis í síma
510 9100 eða sendu tölvupóst á salah8@veltir.is.
Kíktu í kaffi hjá okkur að Hádegismóum 8, 110 Árbæ..

100% rafknúninn Volvo vörubíll

Volvo FE

Hafðu samband við söluráðgjafa Veltis í síma
510 9100 eða sendu tölvupóst á salah8@veltir.is.
Kíktu í kaffi hjá okkur að Hádegismóum 8, 110 Árbæ.

100% rafknúninn Volvo vörubíll

Volvo FL

Hafðu samband við söluráðgjafa Veltis í síma
510 9100 eða sendu tölvupóst á salah8@veltir.is.
Kíktu í kaffi hjá okkur að Hádegismóum 8, 110 Árbæ.


Hleðslubúnaður fyrir fyrirtæki, heimili og sumarhús

Íslensk Bílorka í samvinnu við Brimborg býður gæða hleðslubúnað fyrir rafbíla frá Gresgying.

Íslensk Bílorka er hreyfiafl orkuskipta með það að markmiði að styrkja hleðsluinnviði fyrir rafbíla á Íslandi. Íslensk Bílorka sérhæfir sig í hleðslustöðvum og uppsetningu þeirra og öðrum hleðslubúnaði til að hraða orkuskiptum á Íslandi og er hluti af Brimborgar samsteypunni.

Þú getur sent inn fyrirspurn, pantað ráðgjöf eða pantað hleðslustöð, hleðslukapla eða ferðahleðslutæki og uppsetningu hleðslustöðvar með því að smella hér og fylla út formið.

Smelltu og kynntu þér Íslenska Bílorku hér.

Hraðhleðsla hjá Brimborg Bílorku

Brimborg Bílorka rekur hraðhleðslunet og býður eigendum rafbíla frá Brimborg og keyptum af Brimborg sérkjör fyrir stórnotendur í hraðhleðslu eða aðeins 25 kr. / kWh. Brimborg Bílorka rekur 12 hraðhleðslustöðvar á Íslandi.


Vefspjall